Hafsteinn Guðmundsson, múrarameistari og tækniráðgjafi hjá BM Vallá, segir að fasteignin sé yfirleitt stærsta fjárfesting fólks og því borgi sig að hugsa vel um hana með reglulegu viðhaldi. Hann líkir því við að hugsa um líkamann eða bóna bílinn, þar sem litlir gallar geta þróast í stór og dýr vandamál. Sumarið er besti tíminn til utanverks viðhalds, en skipulag og undirbúningur skipta öllu máli.