Í lok apríl mældist aldrei jafn mikið flóð í Blöndu síðan mælingar hófust. Um 626 rúmmetrar vatns á sekúndu streymdu inn í Blöndulón þann 28. apríl, sem er um fimmtánfalt meira en venjulegt rennsli Blöndu við Blönduós. Þetta er tvöfalt stærra en önnur flóð sem Landsvirkjun á gögn yfir.