Um klukkan hálfeitt í nótt var allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins kallað að Laugavegi 16 eftir að tilkynnt var að mikill reykur bærist frá húsinu. Slökkviliðsmenn eru nú að störfum og leita að upptökum eldsins að sögn varðstjóra. Ekki liggur fyrir hvað olli brunanum eða hvort einhver var í húsinu þegar eldurinn kviknaði.