Bílstjóri rútu sem valt í Seljafirði ákærður - RÚV.is 07.05.2026

Lögreglan á Vesturlandi hefur ákært erlendan ríkisborgara, sem dvelst ekki hér á landi, fyrir að stunda ferðaþjónustu án rekstrarleyfis og aka rútu án tilskilinna réttinda. Maðurinn var með 42 erlenda ferðamenn um borð þegar rútan valt í Seljafirði á Snæfellsnesi að kvöldi 6. október og hafnaði á hvolfi. Enginn slasaðist alvarlega, en tveir voru fluttir á sjúkrahús með þyrlu og nokkrir með sjúkrabíl. Bílstjórinn hafði hvorki meirapróf né leyfi til farþegaflutninga í atvinnuskyni, en var með farþega gegn gjaldi. Ákæran hefur verið birt í Lögbirtingablaðinu, en maðurinn er ekki mættur til landsins.

RÚV Full Article












