Reykjavíkurborg situr uppi með milljarðskostnað vegna þjónustu við börn með fjölþættan vanda, eftir að ríkið herti skilgreiningar sínar. Samkvæmt nýrri reglugerð ríkisins falla 57 börn sem fá þjónustu hjá borginni utan skilgreiningarinnar á börnum með fjölþættar stuðningsþarfir. Ríkið hefur aðeins samþykkt að greiða fyrir þjónustu við fimm börn, þrátt fyrir samkomulag ríkis og sveitarfélaga um að ríkið myndi taka á sig þann kostnað.