Hyggst verja fúlgum til að milda höggið af hækkandi olíuverði - RÚV.is 03.06.2026

Japanska ríkisstjórnin hefur samþykkt að verja rúmlega 2.400 milljörðum króna, eða um þremur trilljónum japanskra jena, til að mæta hækkandi eldsneytis- og orkuverði sem rekja má til stríðsins í Miðausturlöndum. Þessi fjárhæð er nærri helmingi af vergri landsframleiðslu Íslands á síðasta ári. Aðgerðirnar fela í sér niðurgreiðslur á eldsneyti og orkureikningum heimila, en þær bíða enn samþykkis japanska þingsins sem búist er við á föstudag. Talsmaður ríkisstjórnarinnar, Minoru Kihara, greindi frá því á blaðamannafundi að fjáraukalögin séu sett saman til að lágmarka áhættu í óvissutímum. Forsætisráðherra landsins, Sanae Takaichi, greindi frá því í maí að fjármagnið yrði nýtt til að lækka verð á eldsneyti, rafmagni og gasi, og að ríkisstjórnin teldi sig geta tryggt öruggar olíubirgðir fram á næsta vor.
















