Jelena Tinna inn í landsliðið fyrir Hafrúnu Rakel - RÚV.is 03.06.2026

Hafrún Rakel Halldórsdóttir hefur þurft að draga sig úr íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta vegna meiðsla, fyrir komandi leik gegn Úkraínu á föstudag. Í hennar stað hefur Jelena Tinna Kujundzic, 23 ára miðvörður hjá Þrótti, verið valin í hópinn. Þetta gæti orðið hennar fyrsti A-landsleikur, en hún hefur áður leikið tíu leiki fyrir yngri landslið Íslands. Liðið mætir einnig Spáni á þriðjudag. Leikurinn gegn Úkraínu verður í beinni útsendingu á RÚV á föstudag klukkan 16:00, með upphitun frá 15:35.

RÚV Full Article















