Kim tekur sér pásu frá lögfræðinni 07.05.2026

Samkvæmt upplýsingum frá TMZ hefur raunveruleikastjarnan Kim Kardashian ákveðið að taka sér lengra hlé frá laganámi sínu og mun ekki reyna við lögmannspróf í júlí, eftir að hafa sleppt prófinu í febrúar. Hún ætlar ekki að taka prófið aftur fyrr en árið 2027, sem þýðir að lagaleg vegferð hennar mun lengjast enn frekar. Kim féll í prófinu í Kaliforníu í fyrra og hafði áður fallið þrisvar í „baby bar“-prófinu áður en hún náði því árið 2021. Hún lauk lögfræðinámi sínu í maí í fyrra eftir sex ára nám. Þrátt fyrir þetta verður hún ekki lögmaður í bráð, en hún leikur lögfræðing í sjónvarpsþáttunum All's Fair.

Vísir Full Article















