Kosningaspá Vísis: Baráttan færist á aftari sætin og sótt að Miðflokki og Samfylkingu 07.05.2026

Samkvæmt nýjustu kosningaspá Vísis, unninni af stærðfræðingnum Baldri Héðinssyni, hefur Sjálfstæðisflokkurinn stóraukið forskot sitt á Samfylkinguna, nær nú tíu prósentustiga mun og stefnir í nærri 30% fylgi. Samfylkingin er undir 20% og á í hættu að missa fimmta borgarfulltrúa sinn þar sem líkur á kjöri fimmta manns á lista hennar, Stein Olav Romslo, hafa lækkað í um 60%. Á sama tíma sækir Viðreisn í sig veðrið og flokkarnir sem mest finna fyrir áhrifunum eru Miðflokkurinn og Samfylkingin, sérstaklega þegar kemur að síðustu borgarfulltrúasætunum. Annar maður Miðflokksins, Kristín Kolbeinsdóttir, er nú með 58% líkur á kjöri.

Vísir Full Article


















