Quang Lé áfram í farbanni - RÚV.is 03.07.2026

Landsréttur hefur staðfest áframhaldandi farbann yfir Quang Lé, sem er sakborningur í umfangsmesta mansalsmáli sem íslenska lögreglan hefur rannsakað. Hann er grunaður um mansal, skjalafals og peningaþvætti, en brotaþolar í málinu eru 29. Quang Lé var handtekinn og sætti gæsluvarðhaldi frá 6. mars 2024, en var síðan sleppt og úrskurðaður í farbann 13. júní sama ár. Hann hefur því sætt farbanni í rúm tvö ár.

RÚV Full Article














