Lilja Björg nýr sveitarstjóri Dalabyggðar - RÚV.is 02.06.2026

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ráðið Lilju Björgu Ágústsdóttur í starf sveitarstjóra. Lilja Björg, sem er alin upp í Dölunum, hefur meistaragráðu í lögfræði og B.Sc. í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst, ásamt kennaramenntun. Hún hefur víðtæka reynslu af stjórnsýslu og rekstri sveitarfélaga, starfar nú sem sviðsstjóri fjármála og stjórnsýslu hjá Borgarbyggð og hefur gegnt stöðu staðgengils sveitarstjóra þar, auk þess að hafa starfað tímabundið sem sveitarstjóri Borgarbyggðar. Hún hefur einnig reynslu af lögfræðistörfum og hefur gengt formennsku í Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og verið forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar. Sveitarstjórnin telur Lilju hafa nauðsynlega fagþekkingu, reynslu og leiðtogahæfni til að leiða sveitarfélagið.

















