Öllum upplýsingafulltrúum borgarinnar sagt upp 25.06.2026

Nýr meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur hefur gripið til róttækra aðgerða í hagræðingarskyni og sagt öllum sjö upplýsingafulltrúum borgarinnar upp. Starfsfólkið, sem vann undir samskiptastjóranum Evu Bergþóru Guðbergsdóttur, fékk í morgun bréf um fyrirhugaðar breytingar og var síðan kallað á fund borgarritara Þorsteins Gunnarssonar. Samkvæmt heimildum fréttastofu tekur uppsögnin gildi strax og hefur ekki verið óskað eftir áframhaldandi vinnuframlagi þeirra. Auk upplýsingafulltrúa var starfsfólki á sviðinu sagt upp sem hefur sinnt ljósmyndun og myndbandagerð.

Vísir Full Article















