Mjótt á munum í forsetakosningum og óljóst hvor hafði betur - RÚV.is 08.06.2026

Í forsetakosningum í Perú í gær var svo mjótt á munum milli frambjóðendanna Keiko Fujimori og Roberto Sanchez að niðurstaða liggur ekki fyrir. Þegar 92% atkvæða höfðu verið talin hafði Fujimori nauman meirihluta, 50,2% gegn 49,8% hjá Sanchez. Búist er við að Sanchez muni saxa á forskotið þegar atkvæði af landsbyggðinni, þar sem hann nýtur meira fylgis, verða talin. Niðurstöðurnar endurspegla djúpan klofning í þjóðfélaginu, þar sem Fujimori tilheyrir hægri vængnum og Sanchez vinstrinum. Hún er dóttir fyrrverandi forsetans Alberts Fujimoris. Endanleg niðurstaða mun líklega ekki liggja fyrir fyrr en eftir nokkra daga þegar öll vafaatkvæði hafa verið gerð upp.

RÚV Full Article



















