Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), segir að umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins, sem sýnir að olíufélögin hafi aukið álagningu sína um 25 til 50 prósent á síðustu árum, komi honum ekki á óvart. Hann bendir á að þetta sé gamall vandi og vísar til hinna frægu Öskjuhlíðarfunda fyrir 30 árum, þar sem olíufélögin áttu að hafa samráð um verðlagningu. „Nú þurfa menn ekki Öskjuhlíðar til að koma sér saman um eitthvað,“ segir Runólfur og lýsir markaðnum sem klassískum fákeppnismarkaði.