Landsvirkjun hefur gert samninga við tvo verktaka í tengslum við stækkun Sigöldustöðvar á Þjórsársvæðinu. Annars vegar er um að ræða íslenska fyrirtækið Ístak, sem mun annast byggingar helstu mannvirkja vegna stækkunarinnar, og hins vegar þýska fyrirtækið DSD Noell GmbH, sem sér um rista, loka og fallpípu. Samningur Ístaks nemur tæpum 7,5 milljörðum króna og samningur DSD Noell tæpum 2 milljörðum króna, en allar upphæðir eru án virðisaukaskatts.