Áslaug Arna snýr aftur á þing á morgun - RÚV.is 02.06.2026

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, snýr aftur til starfa á Alþingi á morgun eftir tæplega árs leyfi vegna náms í Bandaríkjunum. Hún lauk nýverið námi við Columbia-háskóla í New York, en hefur setið á þingi fyrir flokkinn frá árinu 2016. Varamaður hennar, Sigurður Örn Hilmarsson, vék af þingi í dag. Áslaug Arna tapaði naumlega formannskjöri Sjálfstæðisflokksins í fyrra þar sem hún hlaut 49,09% atkvæða gegn 50,11% sem Guðrún Hafsteinsdóttir fékk. Hún er talin með reynslumestu þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.

RÚV Full Article

















