Móðir 17 ára drengs hefur vakið athygli á því hversu auðvelt sé fyrir ólögráða unglinga að kaupa áfengi í gegnum netverslanir. Hún segir að sonur hennar og vinir hans nýti netverslanir óspart, meðal annars með því að fá eldri einstaklinga til að stofna aðgang. Á tveggja mánaða tímabili hafði sonur hennar greitt 18 sinnum fyrir áfengi á netinu, samtals fyrir tæplega 147 þúsund krónur. Hópurinn sem hann verslaði með var misstór, allt frá 7 til 9 manns, og aldur þeirra var allt niður í 15 ár.